Grúska
Svart-hvítur rammi úr Slökkviliðsæfingu (1906), með börnum og mannfjölda á götu í Reykjavík.

Mynd: Slökkviliðsæfing (1906) · Kvikmyndasafn Íslands / Ísland á filmu(nýr flipi)

Grúska · Skólaverkefni

Ísland á filmu

Kvikmyndasafn Íslands gerir íslenskan kvikmyndaarf aðgengilegan á gagnavefnum Ísland á filmu. Mikið af myndefninu sýnir frá sögulegum atburðum í Íslandssögunni en einnig frá daglegu lífi í samtímanum, fornum verkháttum og fleira.

Opna Ísland á filmu (nýr flipi)

Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.

Lengri verkefni

Hér er búið að taka saman ýmis umfjöllunarefni sem hægt er að skrifa um út frá efninu á Íslandi á filmu. Listinn er ekki tæmandi. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. Að kynna sér vefinn).

ÍslenskaSagaSamfélagsfræði

Ritgerð

Rannsókn ÍÁF ritgerð

Sækja Word

Kynning (hópaverkefni)

Rannsókn ÍÁF kynning

Sækja Word

Styttri verkefni

Tvö verkefni þar sem nemendur leita að efni á vefnum, annars vegar um sögulegan atburð að eigin vali og hins vegar um breytt umhverfi á Íslandi. Æfing í að nota vefinn sem rannsóknartól, góður inngangur fyrir stærri verkefni sem byggja á sama gagnasafni.

ÍslenskaSagaSamfélagsfræði

Að kynna sér vefinn ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Tvö verkefni: Nemendur velja mynd og lýsa hvað gerist; nemendur velja sér þögla mynd og búa til lýsingu sem þeir lesa inn á myndina. Verkefnið er hugsað fyrir nemendur í íslensku sem öðru máli en það er líka hægt að útfæra það fyrir önnur fög.

Íslenska sem annað málÍslenskaSaga

Lýsing á mynd ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Nemendur nota vefinn til að finna máldæmi um íslenskar mállýskur/framburðartilbrigði. Hægt að tvinna saman við verkefni tengdu Ísmús.

Íslenska

Mállýskur ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Íslenzkar stúlkur

Myndefni af íslenskum konum og stúlkum í ýmsum störfum um miðja 20. öld.

SamfélagsfræðiKynjafræðiSagaÍslenska

Íslenzkar stúlkur ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Elsta kvikmynd sem til er frá Íslandi. Vangaveltur um samfélag og sögu þess tíma.

SagaSamfélagsfræðiKynjafræði

Samfélag og saga ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Páll Ísólfsson

Viðtal við tónskáldið Pál Ísólfsson við lok sjöunda áratugs. Nemendur velta fyrir sér málinu sem er talað á þessum tíma.

ÍslenskaSaga

Páll Ísólfsson ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Listi yfir ýmsar áhugaverðar myndir sem er hægt að vinna verkefni upp úr. Listinn er tekinn saman í samstarfi við starfsfólk Kvikmyndasafns Íslands.

SagaÍslenskaSamfélagsfræðiKvikmyndasagaJarðfræði

Áhugaverðar myndir ÍÁF

Sækja Word

Athugasemdir eða eigin verkefni? Skrifaðu okkur á mshl@hi.is.