Verkefnabanki · Grunn- og framhaldsskólar

Verkefnabanki fyrir grunn- og framhaldsskóla þar sem nemendur grúska í gögnum um íslenskt mál, sögu og menningu.

Kollás af íslenskum menningararfsemi: kvikmyndahjól með gömlum ljósmyndum, kort af Íslandi, nótublað og torfbær

Veldu gagnagrunn og byrjaðu að grúska

Sýnishorn úr verkefnabankanum

Ísland á filmu · Styttra verkefni

Elsta kvikmynd sem til er frá Íslandi. Vangaveltur um samfélag og sögu þess tíma.

SagaSamfélagsfræðiKynjafræði

Samfélag og saga ÍÁF tímaverkefni

Sækja Word

Ísmús · Lengra verkefni

Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. Íslenskar kynjaverur, tímaverkefni).

ÍslenskaÞjóðfræði

Kynjaverur rannsókn Ísmús

Sækja Word

Nafnið.is · Lengra verkefni

Nemendur afla sér upplýsinga um stað á Íslandi að eigin vali, velta fyrir sér örnefnum og reyna að sjá hvað hefur breyst. Þeir eru einnig hvattir til að nota önnur gagnasöfn til að afla sér upplýsinga um staðinn. Hér gæti verið sniðugt að leysa styttra verkefni í tíma áður en lengra verkefnið er lagt fyrir.

ÍslenskaSaga

Ritgerð

Staður á Íslandi ritgerð Nafnið

Sækja Word

Kynning

Staður á Íslandi kynning Nafnið

Sækja Word
Sjá öll verkefni

Um Grúsku

Grúska er verkefnabanki fyrir grunn- og framhaldsskóla. Verkefnin byggja á því að nemendur noti gagnagrunna um íslenskt menningarefni sem rannsóknartól og læri að nota þá til að afla sér upplýsinga. Nemendur eru þannig hvattir til þess að kafa dýpra í tiltekið efni, rannsaka og grúska í gögnum um íslenskt mál, sögu og menningu.

Verkefnin eru flokkuð eftir gagnagrunnum og fyrir hvert verkefni er tillaga að faggreinum sem þau gætu hentað í. Kennurum er frjálst að breyta verkefnunum eins og þá lystir og aðlaga efnið að sínum kennsluháttum og nemendum.

Vefurinn verður uppfærður þegar fleiri verkefni koma inn fyrir fleiri gagnagrunna. Hér má líka sjá lista yfir fleiri gagnagrunna um íslenskt menningarefni (nýr flipi).

Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum má hafa samband við okkur. Við viljum endilega heyra frá þér!

mshl@hi.is