Grúska
Handskrifuð nótnaskrift Bjarna Þorsteinssonar að rímnalagi, ásamt prentaðri nótnaskrift.

Mynd: Þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar / Ísmús(nýr flipi)

Grúska · Skólaverkefni

Ísmús

Ísmús er gagnagrunnur sem geymir íslenskan músík- og menningararf. Á vefnum eru birt gögn sem varða íslenska menningu fyrr og nú: hljóðrit, þjóðsögur, ljósmyndir, kvikmyndir, handrit og texta.

Opna Ísmús (nýr flipi)

Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.

Lengri verkefni

Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. Íslenskar kynjaverur, tímaverkefni).

ÍslenskaÞjóðfræði

Kynjaverur rannsókn Ísmús

Sækja Word

Styttri verkefni

Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir.

ÍslenskaÞjóðfræði

Kynjaverur tímaverkefni Ísmús

Sækja Word

Nemendur velja sér barnagælu eða vögguvísu og leysa verkefni. Þeir hlusta á heimildarmenn flytja vísuna og bera saman hvernig efni í munnlegri geymd er breytilegt eftir heimildarfólki. Verkefnið er hægt að aðlaga að þeim kvæðum sem er unnið með hverju sinni.

Íslenska

Kvæði tímaverkefni Ísmús

Sækja Word

Nemendur skoða fjölbreytt safn bragarhátta og leysa nokkur verkefni þar sem þeir greina bragarhættina, hlusta á flutning heimildafólks á kvæðum og reyna loks að gera sinn eigin bragarhátt.

Íslenska

Bragarhættir tímaverkefni Ísmús

Sækja Word

Athugasemdir eða eigin verkefni? Skrifaðu okkur á mshl@hi.is.